Auglýsing

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Tenglar

Klukkan

Könnun

Á maður að flytja til Spánar ?

Blogg leti ! og bara almenn leti !

10. september 2008 klukkan 17:32

Já það verður bara að segjast eins og er .... ég er búin að vera skelfilega löt undanfarið í flest öllu bara síðustu vikur! hef verið dugleg að skoða aðrar bloggsíður og dásama aðra harðduglega bloggara sem hafa yfirleitt mikið að segja....!

Og eins og flestir vita þá gengum við frá íbúðinni hennar mömmu í sumar og þá kom nú í ljós að ég hafði gefið henni dágott safn af bókum undanfarin jól ( þeirri gömlu þótti best að fá bækur í jólagjöf!) ég að sjálfsögðu ætlaði alltaf að fá bækurnar svo lánaðar eftir jólin ENNNN aldrei varð neitt úr því !
nema hvað að ég náði í heilan poka af bókum frá henni og hef setið og lesið nánast allar bækurnar í sumar! semsagt ekki mikið gert hér á kvöldin ...!!! hef frekar bara komið mér vel fyrir undir teppi með góða bók heldur en að fara út að ganga !!! ekki nógu gott eða hvað !

nú þar sem frúin hefur verði ansi dugleg við að ganga í misjöfnu veðri í sumar þó flesta daga hafi nú verið alveg frábært veður :) þá ákvað bóndinn að splæsa í frúnna 66 jakka og buxur alveg hreint rándýrar græjur sem þeim Hákons mönnum stóð til boða að versla á helmings afslætti !!!! og ekta hlífðarföt í rigningu og roki eins og verður nú oft á klakanum,

nema hvað að eitthvað hafði nú stóri bróðir að gera með þessi kaup og sá stærðina sem frúin hafði valið sér og hafði hann nú frétt að frúin hafði aðeins "stækkað" í sumar líka..... ! tók félaginn það að sér að stækka nú aðeins við það sem hafði verið ákveðið af frúnni og um heila stærð fór nú dressið !!
mikið hafði bróðirinn rétt fyrir sér í þessum málum og frúin takk fyrir passar í dressið akkúrat eins og það er núna ..... hugsa að hún hefði ekki komist í aðra skálmina á buxunum ef hún hefði fengið sér stærðina sem hún valdi sér í upphafi !

Þannig að nú er það bara stefnan tekin á Orkubúið hér í bæ ....... hafði tal á henni Ásdísi í gær og bauð hún frúnna velkomna í hópinn ..... þegar hún þorir !! frúnni finnst nefnilega þetta eins og með reykingarnar svolítið félagslegt..... ! ekki að fara einn og standa eins og álfur á miðju gólfi ásamt kraftakörlunum ( sem voru að lyfta þokkalega í gær !) og vita ekki hvort snýr upp né niður í þessum tækjum og tólum..... og ERNA Lind já ég viðurkenni það......ég er bún að gleyma öllu sem þú kenndir mér hérna 17hundruðogsúrkál!

Ég sé það alveg fyrir mér frúnna á harðaspani á hlaupabretti þokkalega fjólubláa af súrefnisskorti algjörlega í panikki....... í jogginggallanum og nýju hlaupaskónum .... !

eins og mamma sagði alltaf " jesús Pétur sé með oss.... og öllum hans vinum "

heilsen ... HG

túttu blogg

06. september 2008 klukkan 19:47
Jæja þá eru tútturnar farnar að blogga :) hvað annað en að nota tæknina til að tilkynna næsta klúbb og uppskriftirnar úr þeim klúbb ;)

en ég vona að það sé í lagi að blasta síðunni hérna og er hún :)

www.123.is/tuttusaumaklubbur

Ég skellti mér á Njarðvíkurvöllinn í dag og horfði á GRV spila við ÍR !!! jæja við skulum bara lítið ræða um þann leik en hitt hana Ernu Lind mína og hafði gaman af því ;) bjargaði deginum!! skutlaði svo dótturinni ásamt vinkonu niður í bæ í Kef á ljósanótt... og fór svo heim og fékk þessa líka yndislegu skírnartertu í boði Tótu og Orra á móti og heitir litla yndisfríð Ragnheiður Tinna :) fékk reyndar sms á leiknum frá Ragheiði túttu sem eignaðist þar með nöfnu og þó hún hafi nú tekið fram að það hafi ekki verið í höfuðið á henni hehe þá er þetta fallegt nafn á dömunni þar sem hún er auðvitað með dökkt hár og alveg hreint yndislega falleg :)

kv HG

Stóra Skógfell

05. september 2008 klukkan 19:45

Jæja þá erum við Tútturnar komnar úr tæplega 2 tíma göngutúr í kring um Stóra Skógfell sem er hér fyrir ofan Grindavík.

Maður verður nú að viðurkenna að harðsperrurnar eru nú bara farnar að segja til sín nú þegar! hvernig ætli morgundagurinn verði þá :)

en þreyttar og ánægðar vorum við og svo er bara Túttu klúbbur hjá Þorgerði og væntanlega alveg snilldar veitingar :)

En í ferðinni var ákveðið að stofna til bloggsíðu túttanna og utanlandsreisa rædd einnig þar sem klúbbsystur eru farnar að safna fyrir eina slíka ásamt mökum ásamt fleira skemmtilegu ;)

alltaf gaman saman :)

kv HG

Þessi er góður frá Margréti :)

02. september 2008 klukkan 16:07

Þú veist að það er 2008 ef...



1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af
því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir  númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu...  Aha ekkert svona fyrst
að þú féllst fyrir þessu.


Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn
verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

En, ef þú bíður of lengi,
mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En
vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun

Ella Dís

27. ágúst 2008 klukkan 15:31
Endilega skrifa undir þennan lista til styrktar Elllu Dís og mömmu hennar :) 

þetta ætlar að vera endalaus þrautarganga fyrir lita barnið og ef þið viljið lesa sögu hennar þá er bloggið mömmu hennar hér fyrir neðan
http://blogg.visir.is/elladis

Hér er svo undirskriftarlistinn

http://www.petitiononline.com/elladis/petition.html


Í tilefni dagsins!

26. ágúst 2008 klukkan 19:00

haldið þið að það séu ekki 60 ár síðan reglulegt flug hófst á milli Íslands og Bandaríkjana :) ohhh þvílik gleði :) nú í tilefni dagsins verður öllu farþegum boðið léttar veitingar hehe

þá er bara málið að bjóða nú "ódýrt" far í tilefni þess ekki satt........!!!!

frúin er nefnilega farin að vanta ýmislegt úr uppáhalds búðinni sinni og stefnir á Bandaríkin í vetur :)

Vantar bara ferðafélaga :) hver er til í ferð til úttlanda....... ?
Hadda G
1 athugasemd

3.flokkur kvenna UMFG í knattspyrnu eru Íslandsmeistarar ;)

24. ágúst 2008 klukkan 19:18

Síðustu tveir daga hafa verið frábærir ;) á vellinum í Grindavík í hreint út sagt biluðu veðri urðu stelpurnar í 3. flokk kvenna Íslandsmeistarar :)

þær stóðu sig alveg frábærlega og ekki spillti að flestir af foreldrunum skelltu sér á leik GRV í gær og þær unnu 2-0 :)

þetta hafa verið alveg frábær boltahelgi þó að Ísland hafi nú tapað í morgun þá höfum við silfrið ;)

í leik Grindavík og Fram í kvöld var þeim skvísum afhent blóm frá UMFG í hálfleik og fagnað alveg svakalega :) alveg er maður svaklega stoltur af þeim stelpum ;)

með gleði í hjarta eftir allar ferðirnar sem maður hefur keyrt í sumar með stelpurnar þá er maður bara þakklátur ;) 

kv HG
 

Hadda G
1 athugasemd

Afreksmenn

23. ágúst 2008 klukkan 11:02

Nú er maður bara kominn á flug í blogginu!!! þetta kallast bara met að skella inn bloggi tvo daga í röð :)

En eftir að hafa lesið blöðin í morgun og í gær og reyndar verð ég að viðurkenna að hafa hangið full mikið fyrir framan sjónvarpið að horfa á olympiuleikana ....!og fylgist með mbl bloggi ásamt fullt af öðrum bloggum....  þá held ég að ég sé fjölmiðlafíkill!!

En maður sér alltaf einhvað sem maður hefur áhuga á og þá koma nú afreksmenn í íþróttum inn í þetta :)

Nú fyrst og fremst eru það okkar menn í handboltanum og þar á meðal hann Björgvin Páll Gústafsson, var að lesa viðtal við mömmu hans í blaðinu og þar kemur nú fram að drengurinn þótti nú ódæll á sínum yngri árum og átti að skella vininum á róandi en móðirin barðist hart fyrir því og skellti honum í boltann :) þar virðist hann hafa náð að koma fram orkunni sem hafði verið til vandræða og er einn af okkar bestu handboltamönnum í dag :)

Annar sem ég hef fylgst með er hann Michael Phelps sundmaður frá Bandaríkjunum, og ef þið vitið ekkert hver það er þá getið þið skoðað hann hér http://en.wikipedia.org/wiki/Michael_Phelps
Hann er ofvirkur með athyglisbrest og var alveg hreint ótrúlegt að drengurinn skuli geta verið búinn að vinna sér inn 14 gull á ólympiuleikum og á 7 heimsmet !!!

það var alveg frábært að sjá hann synda í síðustu viku og þarna er annar afreksmaður sem reyndar hætti á sínum lyfjum ungur! ekki það að maður sé á móti lyfjagjöfum en samt sem áður afrek hjá þeim að geta höndlað ofvirknina og unnið með henni með þessu móti :)

Í dag er dóttirin að spila 2 leiki í fótbolta hér í Grindavík og að sjálfsögðu verður maður á línunni í pollagallanum ;) styðja stelpurnar og í fyrramálið er það svo leikurinn og svo áfram á línuna að fylgjast með öðrum tveimur leikjum í Grindavík ;)

það er bara brjálað að gera í boltanum ...........!

Smá uppdate ...... á því sem gerðist í dag :) stelpurnar í Grindavíkurliði 3 flokks unnu fyrsta leikinn 6-0 :) og jafntefli við HK sem hafa reynst þeim erfitt lið! en samt alveg ótrúlegt hvað þær höfðu mörg marktækifæri og voru seinni hálfleik stórkostlegar! en GRV stóðu sig frábærlega og unnu 2-0 :) þannig að það er eintóm gleði á heimilinu ;)

OG svo er bara að vinna í fyrramálið og var fyrsta leik þeirra UMFG frestað í kjölfar leiksins úti ;) maður er bara spenntur ............ ;)

kv HG
Hadda G
1 athugasemd

Þvílik gleði

22. ágúst 2008 klukkan 14:39

Að sjálfsögðu hljóp maður heim úr vinnu eins hratt og maður gat til að ná leiknum ;) þvílík gleði ........ þetta var bara einu orði sagt stórkostlegur leikur og á tímabili hljóp ég nú bara í burtu!!!

Silfrið komið í höfn og þá er það bara gullið á Sunnudag :) að sjálfsögðu vaknar maður spenntur og spurningin er hvort maður eigi að fara styðja dótturina sem er að spila með 3 flokk kvenna hér í Grindavík eða horfa á leikinn !!!

oh erfitt

Nöldurkelling!

18. ágúst 2008 klukkan 15:14

ætla mér að halda til einu nöldurbloggi í viku !

þeir sem kæra sig ekkert um nöldur :) geta bara skellt sér á aðra síðu :)


Lottovinningurinn stóri fór út um helgina...! og það var heppinn vinningshafi af ÖLLUM vinningnum sem fékk heilar 65 milljónir takk fyrir túkall!

af hverju í %$%&$% er þetta bara ekki bannað!  mér finnst þetta ósanngjarnt að fleiri fái ekki að njóta þess!

væri sko til í það líka að fólk fengi að greiða einhverju styrktarfélagi 1% af upphæðinni....... og það yrði skylda og dregið af upphæðinni og greitt beint í vasa þeirra góðgerðafélags sem yrði fyrir valinu...!  þrátt fyrir að Lotto styrki nú samt sem áður finnst mér að fólkið sem vinnur eigi líka að gera það !

og svo ætla ég að kaupa mér lotto og ath hvort ég vinni ekki :)

Hadda G
2 athugasemdir