Auglýsing

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Tenglar

Klukkan

Könnun

Á maður að flytja til Spánar ?

Aðhald....

19. febrúar 2009 klukkan 18:05

jæja frúin skellti sér alla leið upp tröppurnar í Orkubúinu og keypti sér kort í ræktina ! oh já þið lásuð rétt :) ótrúlegt en satt ..... !  hitti fullt af fólki á leiðinni og sumir frekar hissa hehe og fékk meira að segja klapp fyrir að komast upp tröppurnar og niður aftur hehe

Svo mútaði ég henni Tótu á móti til að fara með mér og sýna mér hvað ég ætti svo að gera þarna hehe því þetta hefur ekki verið mín sterkasta hlið hingað til og búin að fá þessa fínu möppu með allskonar upplýsingum sem ég á að lesa og fara eftir :)

Fyrsti dagurinn var í dag og var tekið "létt" á því eins og Tóta sagði EN kannski var hún ekki alveg að taka það með í dæmið að frúin hefur ekki farið neitt í ræktina síðan hjá Önnu Leu og Bróa hérna í denntíð .... ef eitthvað man eftir þeim þá hehe hva ekki liðin nema 18 ár síðan  !!

nú er orðið svolítið erfitt að pikka á tölvuna .... komnir strengir í hendurnar.... ohjá ! ótrúlegt en satt þá held ég að það verði svolítið erfitt að vakna á morgun :)

kv HG
Hadda G
Petra Rós
 
gott hjá þér Hadda :D
Varstu s.s. í Jane Fonda dressinu síðast þegar þú fórst í ræktina !!! híhíhí
22. febrúar 2009 klukkan 22:41
Hadda G
 
Já Petra :) maður var sko í Jane Fonda dressinu !!! piparmynntugrænar nærbuxnadæmi og grár bolur hehe og á þetta sko ennþá !! allvega þetta gráa !!
25. febrúar 2009 klukkan 11:10
Erna Lind
 
Heyrðu, fórum við ekki einhvern tímann í ræktina þegar ég bjó í Grindó City....ég man þetta ekki alveg. Var ég ekki að taka eitthvað einkaþjálafarapróf og notaði þig sem tilraunadýr? Leiðréttu mig ef mig er að misminna....
04. mars 2009 klukkan 15:16
Hadda G
 
Jú Erna mín :) við skelltum okkur í svoleiðis hehe en ég var nú að meina svona "yogaspinning" dæmi eða þannig tíma :) þannig að ég geti .... seinna farið í skipulagða tíma kl 14:00 án þess að þurfa sjúkrabíl og stuðtæki hehe !!!
05. mars 2009 klukkan 08:45

Skrifa athugasemd