Auglýsing

Undirsíðukubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Undirsíðukubbur

Tenglar

Klukkan

Könnun

Á maður að flytja til Spánar ?

Kattasýning kynjakatta

12. mars 2009 klukkan 20:13

Jæja þá erum við Sleipnir að fara á kattarsýningu um helgina og er mæting kl 8:30 á laugardagsmorgun í skoðun hjá dýralæknum :)

það verður örugglega svakalega gaman að hitta allt hitt "kattar" fólkið og vinina sem maður hefur eignast um árin þarna og spjalla um ketti og ræktunina sem er í gangi :)

svo þá er bara að skella sér á sýninguna sem er núna  að Miðhrauni 2 þar sem just4 kids var áður og kíkja á allar kisurnar :)

það skal tekið fram að aldrei hafa eins margir kettir verið skráðir á sýninguna og núna svo það verður svakalega gaman að skoða allar tegundirnar sem eru á sýningunni :)

það er opið frá 10:00 á laugardagsmorgun til 18:00 og líka á Sunnudaginn :) svo allir að mæta og kíkja á kisurnar :)

kv HG
Hadda G
1 athugasemd

Góður dagur í dag :)

06. mars 2009 klukkan 19:30
Nú í fyrsta lagi á hún Tamara frænka afmæli í dag :) til hamingju með afmælið elsku vina :)

og svo gekk bara dagurinn vel í vinnunni og ég gat reyndar hjálpað ótrúlega mikið við það sem ég átti ekkert að hafa við að gera ..... ja stundum kemur maður að góðum notum við margt sem maður veit en er ekki hjá okkur beint hjá Sýslumanni :) þakklætið sýnir fólkið og manni líður afskaplega vel á eftir :)

ég skellti mér í Víðihlíð til mömmu og að sjálfsögðu mættu mér þær stelpurnar sem eru þar að vinna alltaf jafn glaðar og skemmtilegar :)  mamma hefur verði hálf niðurdregin síðustu vikur! og í dag þá breyttist það nú ansi mikið !!!

í dag enduðum við bara 4 kellur í spjalli við mömmu og hún meira að segja hló og hafði gaman af :) þetta var ótrúlega góð tilfinning og nánast bara eins og fyrsta bros hjá manns eigin barni !!! það er merkilegt hvað góður félagskapur hefur góð áhrif :)

þannig að ég skellti mér í bílskúrinn hjá Grétar bró og fann þar kerruna sem ég er búin að vera leita að í dágóðan tíma...... jebb maður er jafn gleymin og ég veit ekki hvað !!! og er með allt dótið í þvottavél og þrífa og ætla að gefa það lítilli vinkonu sem er hérna oft í heimsókn :)

góður dagur í dag :)

kv HG

Aðhald....

19. febrúar 2009 klukkan 18:05

jæja frúin skellti sér alla leið upp tröppurnar í Orkubúinu og keypti sér kort í ræktina ! oh já þið lásuð rétt :) ótrúlegt en satt ..... !  hitti fullt af fólki á leiðinni og sumir frekar hissa hehe og fékk meira að segja klapp fyrir að komast upp tröppurnar og niður aftur hehe

Svo mútaði ég henni Tótu á móti til að fara með mér og sýna mér hvað ég ætti svo að gera þarna hehe því þetta hefur ekki verið mín sterkasta hlið hingað til og búin að fá þessa fínu möppu með allskonar upplýsingum sem ég á að lesa og fara eftir :)

Fyrsti dagurinn var í dag og var tekið "létt" á því eins og Tóta sagði EN kannski var hún ekki alveg að taka það með í dæmið að frúin hefur ekki farið neitt í ræktina síðan hjá Önnu Leu og Bróa hérna í denntíð .... ef eitthvað man eftir þeim þá hehe hva ekki liðin nema 18 ár síðan  !!

nú er orðið svolítið erfitt að pikka á tölvuna .... komnir strengir í hendurnar.... ohjá ! ótrúlegt en satt þá held ég að það verði svolítið erfitt að vakna á morgun :)

kv HG
Hadda G
4 athugasemdir

Lífshlaupið

04. febrúar 2009 klukkan 15:29

Frúin ákvað að skella sér í smá áskorun við sjálfa sig og skráði sig á www.lifshlaupid.is :)

Markmiðið er að ganga með viðhaldið ( göngustafina ) lágmark 4 kílómetra á dag næsta mánuðinn og reyna að ganga ekki minna en klukkutíma á dag. Það ætti nú að taka mig tæpan klukkutíma að ganga þessa 4 kílómetra og stefnan er að sjálfsögðu tekin á það að vera fljótari auðvitað ..... EN allavega er ég byrjuð :)

Ég tók skrefmælinn með í gönguna og þetta er alveg snilldar tæki sem mælir bæði skref og mílurnar sem maður gengur, þannig að í dag gekk ég 4,176 km og skrefin voru 5550 takk fyrir :)

Svo ég bara skora á ykkur að skella ykkur í áskorun og það verði sem flestir Grindvíkingar með í þessu :)

kv HG

Klósettpappír og eldhúsrúllur :)

31. janúar 2009 klukkan 19:25

Nú er maður alveg á fullu í fjáröflun fyrir dótturina sem er að fara til Danmerkur í sumar með fótboltanum og að sjálfsögðu er klósettpappír og eldhúsrúllu sala í fullum gangi :)  er hérna með lúxusrúlluklósettpappír 36 stykki í pakkningu á 4000 kr og eldhúsrúllupakkningu á 3000 kr :) ef eitthver vill kaupa enda svakalega þægilegt að hafa þetta bara í geymslunni og þurfa ekki "alltaf" að vera versla pappír :)

nú frúin er að standa sig bara ágætlega með áramótaheitin og er búin að vera dugleg að fara í göngu og það var auðvitað alveg frábært veður í dag svo það var tekinn klukkutími í göngu í frábæru veðri.

Ég ætla að vera komin í gott form fyrir sumarið þar sem Þorgerður vinkona min og Siggi maðurinn hennar ætla í göngu ( ja allavega var það sko stefnan að fá allan saumaklúbbinn og maka líka held ég bara ) í svaka göngu á milli Voganna og Grindavíkur .... Þorgerður leiðréttir mig ef þetta er ekki rétt ...!!! og þá er eins gott að vera komin í gott form þegar þar sem þau hjónin eru svo dugleg við þetta :) ég man nú ekki alveg hvað þessi stígur heitir en allavega er þetta lengri leið en við fórum hérna tútturnar Skógfells gönguna síðasta haust :) svo ég verð að vera búin að koma mér í gott form áður en sú ferð verður farin !!

kv Hadda :)


loksins ...

17. janúar 2009 klukkan 18:02
Ég er búin að þjást af bloggleti .... ja ef það er þá til !! en allavega nóg að gera hjá manni eins og venjulega samt sem áður :)

loksins kom nú svarti trukkurinn í hlað á Suðurhóp í gær eftir 4 mánaða ferðalag frá Detroit ...Norfolk.. Hafnarfjörð og þvílik gleði hjá bóndanum :) og nú er verið að aðlaga gripinn Íslenskum aðstæðum hehe t.d með að skella á hann græjum til að draga gripinn ef hann festist í snjó eins og gerðist með gamla gripinn í janúar í fyrra! skella á hann öllu því sem hefur verið verslað á netinu og þrífa hann !!
þetta ætti nú að vera nóg verkefni á meðan verið er að bíða eftir að lyfin sem hann tekur eru að virka betur! þetta eru ansi sterk lyf sem hafa bæði slæm og góð áhrif og það á eftir að taka góðan tíma í að aðlagast þessu ! við verðum bara að vona að þau fari að vinna á líkamanum!
En þau feðginin eru að fara saman til sjúkraþjálfara, hún vegna fótboltameiðsla og hann til að fá betri mátt í vinstri hendina og fótinn og það verður örugglega miklu betra að vinna úr þessu þegar hann fær rétta meðhöndlun á því hvað sé hægt að gera til að styrkja líkamann fyrir það sem koma skal.

Ekki hefur enn reynt á áramótaheitin .... sagði ykkur þetta hehe sko með að klikka "alltaf" á þessum bölvuðu áramótaheitum !! en samt ég er búin að vera hrikalega dugleg að lesa og það var eitt af því sem ég var búin að stefna að ! reyndar eru þetta nú bara jólabækurnar en samt .... maður er þó að gera eitthvað uppbyggjandi og fræðast meira um glæpaheim/skáldsögurnar :) kannski betra að lesa eitthvað um að gera betur og uppbyggjandi EN þetta er fínt eins og það er :) svo göngustafirnir eru hér við hliðina á mér og ég sé ekki betur en það sé hálfgert glott á þeim bölvuðum ..... svei mér þá !!!

heilsen HG
Hadda G
2 athugasemdir

Áramótaheitin 2009

29. desember 2008 klukkan 11:45
 

Þá er nú að koma að áramótum og verður minn helmingur af fjölskyldunni hjá okkur í mat og að sjálfsögðu sprengju látunum ! ég hefði ekkert verið á móti því að eiga Disney trivial fyrir krakkana ( og mig hehe ) fyrir kvöldið, aldrei að vita nema maður splæsi í eitt stykki fyrir fjölskylduna.

EN áramótaheitin .... hef nú reynt við þau nokkur og alltaf verið alveg ótrúlega dugleg við að gleyma þeim mjög fljótlega aftur !

í ár fékk ég hinsvegar alveg frábæra jólagjöf frá Sýslumanni og tók þessu sem góðri ábendingu um að maður ætti að fara byrja á því að ganga aftur þar sem ég var alveg ótrúlega dugleg í fyrrasumar að ganga ..... ég fékk nefnilega göngustafi, skrefmæli og kompás til að ég týnist ekki J  nú ég fékk auðvitað leiðbeiningar frá góðri vinkonu hehe hvernig ætti að mæla og festa dæmið og svo er bara að halda af stað ... þann 1 janúar 2009 !

þannig að mín áramótaheit eru einföld, út skal frúin vopnuð göngustöfum í nýja vindgallanum sem hún verslaði !! eitthver var nú að spá í hvort ég þyrfti ekki að fjárfesta í hjartastuðtæki líka .... !

Og auðvitað vil ég óska ykkur öllum gleðilegt nýtt ár og þakka samfylgdina á liðnu ári J vona að það nýja verði sem allra best.

bestu kveðjur HG 

Hadda G
2 athugasemdir

jólin !

22. desember 2008 klukkan 13:33

þá eru 2 dagar til jóla og frúin alls ekki komin í jólagírinn ! eitthvað út á þekju þessa dagana!

en Túttuferðin heppnaðis alveg svakalega vel :) ég skemmti mér konunglega og verslaði þó nokkar gjafir ásamt því að bjarga frúnni frá því að komast í jólaköttinn og verslaði ég mér smá föt hehe alveg með það á hreinu að þessi hvítvínsglös á kaffihúsinu hafi eitthvað með það að gera :)
og svo ákvað ég að kaupa mér mannbrodda fyrir næstu verslunarferð með túttunum ....! eitthvað var nú af snjó þarna um kvöldið og frúin skellti sér á hausinn þarna á miðju bílaplaninu og rann skemmtilega eftir götunni og nú er hendin í lamasessi og upp að öxl! það þarf ekkert að taka það fram að frúin var ansi hvít ... þegar hún kom heim af salti og viðbjóði !! en allavega var þetta frábær ferð :)

svo er bara reyna koma sér í jólagírinn !!! og borða skötu í kvöld hjá tengdó :) hlakka svakalega til .. annað en hinir fjölskyldu meðlimirnir ! en þau fá humar og fleira gott :)

Ég vil bara óska öllum netvinum og þeim sem fylgjast hérna með mér á síðunni gleðilegra jóla og ég held ég láti ekkert sjá mig fyrr en eftir jól :)

gleðileg jól allir :)
Hadda G
2 athugasemdir

Túttuferð

20. desember 2008 klukkan 15:20

Ég skellti mér í bæinn í gær og keypti nánast bara allar jólagjafirnar !! alveg tók þetta met tíma og ég á bara nokkrar gjafir eftir sem fjölskyldan ákvað að biðja mig um að kaupa !!!  svo sótti ég Grétar bró en hann var að koma í land og ég get svarið það að ég var hrikalega fegin að renna út úr bænum aftur !!!

En aftur í Reykjavík í dag og í þetta skiptið með nokkrum stelpum úr Trylltu túttunum saumaklúbbnum okkar og það verður örugglega svakalega gaman eins og síðustu ár :) við höfum farið í all mörg ár í Reykjavík síðustu helgina fyrir jól en þó komast nú ekki allar þó við höfum einu sinni verið allar saman :) og það var alveg hrikalega gaman :) í þessari ferð er svona loka hnykkurinn á gjafakaupum og stundum bara verslað á okkur sjálfar :) og svo út að borða í góðum félagskap :)

hlakka gífurlega til ;)
kv HG

Jóla..... jóla...

17. desember 2008 klukkan 09:02

Það hefur nú verið venjan hjá okkur fjölskyldunni að setja upp jólatréið á þorláksmessu síðan við byrjuðum að búa og flestir í kring um okkur gera það líka þann dag!

En núna eru allt í einu er annað hvor hús komið með skreytt jólatré og við orðin hálf halló !!!  það er kannski bara blessuð kreppan sem er hér að pota sér í jólaundirbúninginn :) fá smá hlýju af ljósunum. 

alls ekki það að ég sé nokkuð á móti því og er bara að spá í hvort það sé bara ekki alveg tilvalið að skella tréinu upp aðeins fyrr ! það versta við það að jólaskrautið í glugganum hjá okkur er svo svakalega bjart og margar perur að ég efast um að jólatréið þurfi nokkrar perur á það  hehehe !!!

Og svo er það blessaðar jólagjafirnar !!! bóndinn keypti gjöf handa unglingnum í ferðinni til Usa og þar með er það upptalið hvað er búið að versla af þeim !!!
ég hef bara aldrei verið svona sein að kaupa gjafirnar og hreinlega ekkert stressuð yfir því ! held að þetta séu uþb þau rólegustu jól sem ég hef upplifað !!  reyndar er nú búið að ákveða hvað á að gefa og það verður ekki vandamálið bara er ekkert að stressa mig yfir þessu :)

ég ætla mér að njóta jólanna með fjölskyldunni og vinum :) reyndar verður Sveinn minn úti í Usa yfir jólin og á maður eftir að sakna hans svakalega en Helga Dögg kemur heim ;) hef ekki séð hana í 3 ár !! allt of langt!

Og ég ætla að vona að maður verði orðinn hressari til þess að fara á laugardaginn með túttunum í Reykjavíkurferðina okkar :) eitt af skemmtilegustu ferðum ársins :)
kv HG
Hadda G
2 athugasemdir